07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4881 í B-deild Alþingistíðinda. (4167)

367. mál, fjáraukalög 1980

Frsm. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur fjallað um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1980. Nefndin hefur borið saman niðurstöðutölur fjárlaga og ríkisreiknings fyrir það ár og sannfærst um að þeim niðurstöðutölum ber saman við það sem fram kemur í frv. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.