07.05.1985
Sameinað þing: 80. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4936 í B-deild Alþingistíðinda. (4194)

427. mál, fiskeldismál

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Út af orðum hv. 3. þm. Norðurl. e. um að forseti beitti sér fyrir afgreiðslu þessa máls skal það sagt að það er eindreginn vilji forseta að mál séu afgreidd frá þinginu. En það er komið undir vilja hverrar nefndar fyrir sig hvað hún gerir í hverju máli og það er ekki í valdi forseta að kveða á um það hvað gert er.