08.05.1985
Neðri deild: 65. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4981 í B-deild Alþingistíðinda. (4247)

274. mál, ávana- og fíkniefni

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Frá hv. Ed. hefur komið breyting á því frv. sem flutt var í hv. Nd. Ég hef kynnt mér það hjá þeim nm. sem náðst hefur í að þeir eru sammála þeirri breytingu sem gerð var á frv. í Ed., en hún er þess efnis að aukin refsing verði vegna ítrekaðra brota. Þess vegna legg ég til, herra forseti, að þetta mál verði samþykkt hér og nú.