09.05.1985
Neðri deild: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5039 í B-deild Alþingistíðinda. (4333)
47. mál, barnalög
Frsm. minni hl. (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Þessu til viðbótar vil ég benda á að það er meira en hæpinn málflutningur að frv. þm. verði hafnað en þess í stað sé ráðlagt að senda málið til nefndar þeirrar sem lögin samdi. Ég hafna því algerlega að sú nefnd sé nokkru færari um að sjá ágalla á barnalögum en við hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir. Ef það er stefna Alþingis að einungis ríkisstjórnarfrv. nái fram að ganga, sem mestan part eru samin af embættismönnum í kerfinu, þá fæ ég ekki annað séð en að þm. geti hætt að gera tilraunir til þess að breyta lögum. Ég hef þó hingað til haldið að til þess værum við á þing kjörin að leiðrétta löggjöf landsins í þágu þegnanna. Og mér þykir það meira en vafasöm tillaga sem hér kom fram í máli hv. 1. þm. Vesturl. að það þurfi að leita hjálpar um þetta atriði út í bæ. Ég tel að hér séu góðar og gildar tillögur sem lagfæra þennan galla sem hér hefur verið rætt um og ég skora á alþm. að hafa það sjálfstraust til að bera og það traust hver á öðrum, að þeir treysti sér til að samþykkja frv. og þá brtt. sem hér liggur fyrir.