10.05.1985
Neðri deild: 67. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5119 í B-deild Alþingistíðinda. (4373)

416. mál, þingsköp Alþingis

Forseti (Ingvar Gíslason):

Það eru ekki fleiri á mælendaskrá. Ég vil taka það fram að frsm. þessa máls á mjög óhægt um að taka þátt í umr. nú. En eigi að síður telur forseti rétt að ef ekki kveðja sér fleiri hljóðs verði þessari umr. lokið nú, en að frekari umræður verði og nánari við 2. umr. málsins.