14.05.1985
Sameinað þing: 82. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5207 í B-deild Alþingistíðinda. (4496)
436. mál, framhald samningaviðræðna við Alusuisse
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Á þskj. 731 á hv. 5. þm. Austurl. fsp. í þremur liðum.
Svar við fyrsta lið: Umrætt bréf um samkomulag er í fimm liðum. Formlegar samningaviðræður samninganefnda aðila hafa ekki farið fram, en unnið hefur verið að undirbúningi slíkra viðræðna með ýmsum hætti.
1. liður í þessu bréfi fjallar um breytingar á framleiðslugjaldi ÍSALs og vísast um það mál til svars við 2. lið spurningarinnar.
2. liður bréfsins fjallar um viðræður um stækkun álbræðslunnar og vísast í því efni til 3. liðar spurningarinnar á þskj. 731.
3. liður bréfsins fjallar um að Alusuisse skuli gera forathugun á hagkvæmni þess að byggja rafskautaverksmiðju í Straumsvík í samræmi við gr. 2.4 í bráðabirgðasamkomulagi aðilanna. Þessari athugun er ekki lokið.
4. liður bréfsins sem afhent var fjallar um rétt ríkisstj. til að kaupa hlut í ÍSAL. Ríkisstj. hefur ekki tekið ákvörðun um að óska eftir sölutilboði í samræmi við bréfið enn sem komið er.
5. liður bréfsins fjallar um að bráðabirgðasamkomulag aðila sé áfram í gildi og svo er.
Svar við öðrum lið fsp.: Sérfræðingar aðila hafa þegar haldið tvo fundi varðandi umræddar breytingar og þriðji fundur sérfræðinganna verður í lok maí. Á þeim fundi er gert ráð fyrir að sérfræðingar aðilanna ljúki umfjöllun sinni og samninganefndir taki við málinu. Ástæða er til að ætla að samkomulag geti tekist fljótlega.
Svar við þriðja lið fsp.: Ríkisstj. hefur enn sem komið er ekki afhent Alusuisse bréf um þetta efni og eiginlegar samningaviðræður hafa enn ekki hafist. Aftur á móti hafa aðilar haft samband hvor við annan og undirbúningur að fyrsta samningafundinum er hafinn. Sá fundur verður væntanlega í lok þessa mánaðar.