15.05.1985
Neðri deild: 70. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5293 í B-deild Alþingistíðinda. (4582)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ingvar Gíslason):

Mér hefur borist svofellt bréf:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Birgir Ísl. Gunnarsson. 4. þm. Reykv.

Guðmundur H. Garðarsson hefur áður sótt þingfundi og setið þetta þing. Þarf því ekki að kanna kjörbréf hans. Ég býð Guðmund velkominn til starfa á Alþingi.