15.05.1985
Neðri deild: 70. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5296 í B-deild Alþingistíðinda. (4599)

492. mál, Iðnþróunarsjóður

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Á þskj. 916 flyt ég frv. til l. um breytingu á lögum nr. 9 frá 13. febr. 1970, um Iðnþróunarsjóð. Með samningi ríkisstj. Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar, sem dags. er 12. des. 1969, var stofnaður norrænn iðnþróunarsjóður fyrir Ísland. Stofnun hans skapaði á sínum tíma ný viðhorf varðandi möguleika íslenskra iðnfyrirtækja til að fjármagna uppbyggingu og endurnýjun.

Sjóðurinn hefur tekið virkan þátt í margvíslegum verkefnum til eflingar íslenskum iðnaði. Meginviðfangsefnið skv. stofnsamningi var að efla útflutningsiðnað og auðvelda aðlögun að breyttum markaðsaðstæðum á innlendum markaði vegna tollalækkana við aðild Íslands að EFTA.

Ráðstöfunarfé sjóðsins var í upphafi og til ársins 1980 einungis stofnfé hans, sem nam jafnvirði 14 millj. Bandaríkjadala, auk árlegra vaxta og afborgana af veittum lánum.

Hinn 29. apríl 1980 var undirritaður viðbótarsamningur við samninginn um stofnun norræns iðnþróunarsjóðs fyrir Ísland. Með þeim viðbótarsamningi voru gerðar tvær breytingar á samningnum. Í fyrsta lagi var sjóðnum veitt heimild til að taka lán til að fjármagna almenna lánastarfsemi og til að endurlána til sérstakra meiri háttar framkvæmda í iðnaði. Var það gert með breytingum á 5. mgr. 2. liðar og 2. mgr. 4. liðar.

Í öðru lagi voru auknar heimildir skv. 4. lið samningsins til að veita styrki og hagstæð lán til rannsókna á nýjum iðnaði, til vöruþróunar, markaðsathugana o. fl. er nam 10% af eigin fé sjóðsins í upphafi árs 1980 og við þá upphæð hafa bæst árlega 10% af rekstrarafgangi hvers árs, í fyrsta skipti af rekstrarafgangi 1980.

Með frv. þessu er lagt til að ríkisstj. verði veitt heimild til að staðfesta af Íslands hálfu nýjan viðbótarsamning við samninginn frá 12. des. 1969, sem felur í sér eftirfarandi þrjár meginbreytingar:

1. Að verksvið sjóðsins verði víkkað. Skv. gildandi samningi er tilgangur sjóðsins að stuðla að tækni- og iðnþróun Íslands við aðild að EFTA og auðvelda aðlögun iðnaðarins í því sambandi. Þar sem aðlögunartímabili vegna EFTA-aðildar er lokið þykir tímabært að skilgreina hlutverk sjóðsins víðtækar en nú er gert. Megináhersla er þó áfram lögð á tækni- og iðnþróun og samvinnu á sviði iðnaðar og viðskipta milli Íslands og annarra norrænna landa. Með breytingum á skilgreiningu tilgangs sjóðsins er fyrst og fremst haft í huga að ekki leiki vafi á að sjóðurinn geti tekið þátt í fjármögnun arðvænlegra framkvæmda sem horfa til nýjunga í atvinnustarfsemi þótt umrædd starfsemi falli ekki undir hefðbundna skilgreiningu iðnaðar. Sama gildir um margvíslega starfsemi er tækniframfarir á tölvuöld munu leiða af sér.

2. Að möguleikar í lánskjörum verði sveigjanlegri. Skv. gildandi samningi eru almenn lán sjóðsins að fullu gengistryggð miðað við dollar. Með þeirri breytingu, sem lagt er til að gerð verði, mun sjóðurinn hafa möguleika á að taka lán í öðrum gjaldmiðli en dollar og endurlána í sama gjaldmiðli. Einnig verður unnt að lána eigið fé sjóðsins út í íslenskum krónum með þeim kjörum er stjórn sjóðsins ákveður. Gert er þó ráð fyrir að stofnfé sjóðsins — en það skal endurgreiðast í dollurum — verði lánað áfram út í dollurum.

3. Að auknir verði möguleikar sjóðsins til þátttöku í áhættufjármögnun. Skv. gildandi samningi starfar sjóðurinn að verkefni sínu með því að veita lán og ábyrgðir. Með breytingu þeirri. sem lagt er til að gerð verði, hefur sjóðurinn möguleika á að kaupa og selja hlutabréf í starfandi hlutafélögum og taka þátt í stofnun nýrra. Ætlunin er að slík hlutafjárkaup komi því aðeins til að ekki hafi reynst unnt að afla nauðsynleg; áhættufjármagns eftir öðrum leiðum og sýnt þyki að álitlegu verkefni verði ekki hrundið í framkvæmd nema þátttaka sjóðsins komi til. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn eigi hlutafé mjög tímabundið og hlutabréf séu seld strax og aðstæður leyfa og hagkvæmt þykir.

Ofangreindar tillögur hafa verið gerðar af nefnd sem skipuð var af mér með bréfi dags. 20. febr. s. l. til að yfirfara lög og samning um Iðnþróunarsjóð. Nefndina skipuðu eftirtaldir menn: Dr. Jóhannes Nordal seðlahankastjóri, formaður. Bragi Hannesson bankastjóri, Guðmundur Malmquist hdl. og Þorvarður Alfonsson framkvstj. Tillögurnar voru kynntar og ræddar ítarlega á fundi stjórnar Iðnþróunarsjóðs 14. mars s. l. og kom fram jákvæð afstaða fulltrúa þeirra landa er fundinn sóttu.

Þar sem breytingarnar fela ekki í sér neinar nýjar fjárhagslegar skuldbindingar fyrir hin löndin virðast þær geta komist í kring í erindaskiptum milli utanríkisráðuneyta landanna. Ríkisstjórnir allra Norðurlanda þurfa að samþykkja tillögurnar og staðfesta viðbótarsamning við samninginn þar að lútandi. Utanrrn. vinnur nú að því að afla samþykkis ríkisstjórna hinna Norðurlandanna við breytingum þessum. Þykir því rétt að afla nú þegar heimildar Alþingis til þessara breytinga og að veita þeim lagagildi hér á landi. En til þess þarf að sjálfsögðu að breyta lögum nr. 9/1970. um Iðnþróunarsjóð. með áorðnum breytingum. sbr. lög nr. 43/1980, en með þeim lögum var stofnsamningnum og viðbótarsamningnum jafnframt veitt lagagildi hér á landi.

Samningurinn öðlast gildi fimm dögum eftir þann dag er öll aðildarríki hafa tilkynnt að uppfylltar hafi verið kröfur sem gerðar eru til gildistöku í hverju landi fyrir sig.

Herra forseti. Ég legg til að þegar 1. umr. um málið lýkur verði málinu vísað til 2. umr. og iðnn.