23.05.1985
Sameinað þing: 86. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5626 í B-deild Alþingistíðinda. (4873)

496. mál, stefna Íslendinga í afvopnunarmálum

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs. Það liggur ekki fyrir tillaga um að vísa þessu máli til nefndar og það er ekki óeðlilegt þar sem sú nefnd sem hefði átt að fá málið til meðferðar hefur flutt þetta mál. Af þessu leiðir að það rekur ekki nauður til að fresta umræðu þar sem málið gengur ekki til nefndar. Þess vegna er okkur ekkert að vanbúnaði að ganga til atkvæða um till. þegar umræðu er lokið. Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs og er umræðu lokið og verður gengið til atkvæða.