28.05.1985
Sameinað þing: 88. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5682 í B-deild Alþingistíðinda. (4956)
417. mál, sjónvarpsefni frá fjarskiptahnöttum
Flm. (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég fagna sérstaklega þeirri yfirlýsingu sem hæstv. menntmrh. gaf í umr. áðan Eins og ég gat um var sú þáltill. sem hér er á dagskrá í dag einnig borin fram á síðasta þingi fyrir rúmu ári. Á því þingi hlaut hún ekki endanlega afgreiðslu, kom ekki úr allshn. Nú upplýsir hæstv. menntmrh. hins vegar að í janúar í vetur hafi ráðh. falið útvarpsstjóra. forstjóra og yfirmanni sjónvarps og öðrum yfirvöldum útvarps að vinna að athugun og sérstakri könnun á framkvæmd þeirra hugmynda og ráðagerða sem í þáltill. um móttöku sjónvarpsefnis frá fjarskiptahnöttum felast. Það voru mjög ánægjuleg tíðindi að skriður er nú kominn á þetta mál fyrir fjórum mánuðum. Ég vil sérstaklega fagna því. Segja má að þótt þessi till., sem hér liggur fyrir, hafi ekki náð afgreiðslu í Sþ. í fyrra hafi hún borið nokkurn ávöxt.