28.05.1985
Neðri deild: 76. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5706 í B-deild Alþingistíðinda. (4981)

363. mál, lagmetisiðnaður

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Þar sem lög þessi þvinga alla aðila í lagmetisiðnaði til þess að selja sínar afurðir í gegnum viðkomandi aðila ef þeir eiga að hafa nokkurn möguleika á að selja afurðir til landa austantjalds og það er verið að framlengja einokun sem átti að vera aðeins örfá ár segi ég nei.