28.05.1985
Neðri deild: 76. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5721 í B-deild Alþingistíðinda. (5001)
164. mál, kerfisbundin skráning á upplýsingum
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Ég þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu hennar á þessu máli og þann stuðning sem hún veitir því eins og kom fram í máli frsm., hv. 1. þm. Vesturl., sem er manna best kunnugur þessum lögum vegna forgöngu hans að setningu þeirra og áhrifa við að móta framkvæmd þeirra í upphafi.
Ég gat þess hér við 1. umr. og það kom einnig fram í máli frsm. að í Ed. var gerð sú breyting á að setja inn ákvæði um að lög skyldu gilda takmarkaðan tíma og falla þá úr gildi til þess að endurskoðun færi fram fyrir þann tíma. Það var gengið út frá því að þarna væri um sams konar ákvæði að ræða og er í gildandi lögum. En það hefur orðið sú vangá að þarna er aðeins um að ræða þrjú ár eftir till. sem flutt var í Ed., en í gildandi lögum eru það fjögur ár. Nú skiptir þetta kannske ekki miklu máli, hvort um væri að ræða þrjú eða fjögur ár. nema vegna þess að jafnframt er gert ráð fyrir að tölvunefnd verði skipuð til fjögurra ára. Það er óeðlilegt að þarna sé ekki samræmi á milli. Því vildi ég beina því til hv. allshn. að hún athugaði hvort þarna yrði ekki gerð sú lagfæring á að lögin giltu í fjögur ár, til 31. des. 1989, til þess að samræmi yrði milli þessara tveggja ákvæða.