29.05.1985
Efri deild: 84. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5732 í B-deild Alþingistíðinda. (5035)

382. mál, Sementsverksmiðja ríkisins

Davíð Aðalsteinsson:

Virðulegi forseti. Þegar þetta mál var lagt fram skorti ýmis veigamikil rök fyrir þeim ráðstöfunum sem frv. felur í sér. Allar upplýsingar, sem fram hafa komið við umfjötlun málsins í iðnn., benda til þess að rekstur sementsverksmiðjunnar hafi stórbatnað síðustu misseri og spáð er að sá bati haldi áfram við ríkjandi stjórnarhætti í fyrirtækinu. Ekki síst í ljósi þessa tel ég þetta frv. vera rökleysu, breytingu breytingarinnar vegna. Ég segi nei.