29.05.1985
Neðri deild: 78. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5751 í B-deild Alþingistíðinda. (5073)

406. mál, tímabundið vörugjald

Kristín S. Kvaran:

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa í sjálfu sér nein orð um þetta frv. Ég vísa eingöngu til grg. með því frv. sem ég var að enda við að tala fyrir. Þetta frv. miðar að því að fellt verði niður 24% vörugjald af barnavögnum og hlutum til þeirra. Að öðru leyti vísa ég til grg. sem fylgir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 120/1976, um tollskrá o. fl., en það er mál nr. 405 eða það mál sem ég var að enda við að tala fyrir.

Að lokinni þessari umr. legg ég til að þessu máli verði vísað til fjh.- og viðskn.