04.06.1985
Sameinað þing: 92. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5868 í B-deild Alþingistíðinda. (5230)

272. mál, námskeið fyrir fatlaða í tölvufræðum

Forseti (Helgi Seljan):

Ég hygg, miðað við málsaðstæður og það að nú er búið að óska eftir því mjög eindregið að fundur verði í Nd., að við munum ekki halda þessari umr. lengi áfram. Ég hafði hugsað mér að taka hér stutta umr. — vonandi stutta umr. — um tvö mál og síðan slíta þessum fundi. Ég tek það fram út af því sem hæstv. menntmrh. sagði að ég hef ekki hugsað mér að láta fara fram atkvgr. um málið á þessum fundi. Hæstv. ráðh. gefst því tækifæri til að koma sinni till. á framfæri.