04.06.1985
Neðri deild: 82. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5892 í B-deild Alþingistíðinda. (5248)

470. mál, Þroskaþjálfaskóli Íslands

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta Nd. fyrir þær upplýsingar sem hann hefur veitt við fsp. minni. Það er ljóst að það er þingflokkur Sjálfstfl. sem hefur lagt fram ósk um að tefja þingstörfin með þeim hætti sem hér hefur komið fram. Það er ástæða til að hafa það í huga þegar beiðnir koma núna næstu daga til stjórnarandstöðuflokkanna um að þeir greiði fyrir þinghaldinu að stærsti þingflokkur þingsins skuli með þessum hætti tefja þinghaldið.