06.11.1984
Sameinað þing: 15. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 786 í B-deild Alþingistíðinda. (535)

72. mál, forræðislausir foreldrar

Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Aðeins örstutt aths. Hæstv. dómsmrh. upplýsir að hann geti ekki frætt okkur um það hvernig hefur gengið að framfylgja þessum 71 úrskurði. Ég tel það mjög veigamikið atriði að fá slíkt upplýst. Ég held að einmitt þegar slíkar upplýsingar lægju fyrir væri hægt að leggja mat á það hvort ástæða væri til að breyta á einhvern hátt þessu ákvæði 40. gr. barnalaganna. Því vil ég spyrja hæstv. dómsmrh. hvort hann sé reiðubúinn að láta kanna hvernig hefur gengið að framfylgja þessum úrskurðum og leggja það þá hér fram fyrir hv: Alþingi með skriflegu svari.