06.06.1985
Neðri deild: 85. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5976 í B-deild Alþingistíðinda. (5389)
Um þingsköp
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Mér sýnist að hér sé þegar hafin utandagskrárumræða þannig að það sé nokkuð sérkennilegt að halda áfram þessum leik þegar málið er rætt efnislega hér í hverri ræðunni á fætur annarri og sem viðlag heyrist svo ævinlega hjá hæstv. forseta: Hér er um að ræða umræður um þingsköp. Ég teldi hreinlegast fyrir hæstv. forseta að úrskurða hér og nú: Hér eru hafnar utandagskrárumræður og hæstv. menntmrh. hefur, þrátt fyrir neitun sína í morgun, samþykkt að taka þátt í þeim.
Ef hins vegar hæstv. menntmrh. vantar spurningu til að svara, þá hélt ég nú að það lægi svo í augum uppi að það þyrfti ekki að ítreka það í framhaldi af máli hv. þm. Kristínar Kvaran hér áðan. En ég geri tilraun til þess og ég spyr hæstv. menntmrh.: Hvað hyggst menntmrh. gera vegna þess vanda sem kominn er upp á dagvistarstofnunum og fyrirsjáanlegt er að muni fara vaxandi á næstu vikum og mánuðum ef ekki verður gripið í taumana alveg næstu daga?
Ég óska sem sagt eftir því við hæstv. forseta að hann líti svo á að hér sé um utandagskrárumræður að ræða enda hefur nú komið fram spurning sem hæstv. menntmrh. var að auglýsa eftir að vantaði hér í umræðuna áðan. Fallist hæstv. forseti hins vegar ekki á þessa ósk finnst mér eðlilegt að hann gangi frá því við hæstv. menntmrh. að síðar í dag eða á morgun fari fram umræða utan dagskrár um þessi mál eins og hv. 2. landsk. þm. Jóhanna Sigurðardóttir mæltist til áðan. Það er auðvitað algerlega óeðlilegt að halda á málum eins og hæstv. menntmrh. hefur gert. Það er verið að stefna þinghaldinu í hnút. Við stöndum frammi fyrir verulega langri dagskrá hér í hv. deild og það er sjaldgæft, að ekki sé meira sagt, að ráðh. leggi sig eins fram og hæstv. menntmrh. hefur gert við að tefja þingstörfin.