06.06.1985
Neðri deild: 85. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5978 í B-deild Alþingistíðinda. (5397)
Um þingsköp
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það hefur verið upplýst að forseti hefur talað lengst í þeirri umræðu sem hér hefur farið fram og af því tilefni vil ég beina einni fsp. til forseta. Hann hefur upplýst að sú hefð er mjög gömul að ekki skuli tekin fyrir mál til umræðu utan dagskrár nema ráðh. samþykki. Hann hefur marglýst því yfir að hann hafi ekki áhuga á að brjóta þá hefð. Mín fsp. til forseta er sú: Hefur forseti ákveðið að í staðinn fyrir þá hefð skuli upp tekið að menn hefji hér umræður um þingsköp en ræði efnisleg atriði þeirra mála sem þeim var neitað að taka fyrir í umræðu utandagskrár? Verði sú regla tekin upp þarf aldrei að tala við ráðh. eða forseta um það hvort umræður verði leyfðar um eitt eða neitt, heldur ákveða þm. sjálfir hvenær þeir hefja umræður utan dagskrár hér í þinginu.