10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6122 í B-deild Alþingistíðinda. (5574)

Um þingsköp

Páll Dagbjartsson:

Herra forseti. Mig langaði til að spyrjast fyrir um hvað liði afgreiðslu frv. til l. um breytingu á lögum um grunnskóla úr menntmn. Fyrsti minni hl. hefur skilað áliti hér á sérstöku þskj. en málið er ekki enn þá komið á dagskrá. Er hægt að fá þetta upplýst?