10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6122 í B-deild Alþingistíðinda. (5576)

Um þingsköp

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Það liggur fyrir að skila nál. varðandi þrjú mál sem til afgreiðslu eru í menntmn. Nd. Ég hygg að eins og þingstörf hafa gengið fyrir sig hafi þetta ekki orðið til að tefja störf þingsins. Miklu fremur hygg ég að nauðsynlegt sé að menn átti sig vel á nál. áður en þeir skila þeim frá sér.