10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6122 í B-deild Alþingistíðinda. (5577)

Um þingsköp

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það fór ekki á milli mála á fundi menntmn. hver væri afstaða minni hl., þ. e. 1. minni hl., í þessu máli. Ef formaður menntmn. segir nú að það sé eins gott að menn átti sig á eðli málsins þætti mér vænt um að fá það upplýst hvort sá 1. minni hl. hefur breytt um skoðun frá því sem túlkað var á fundinum.