10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6124 í B-deild Alþingistíðinda. (5584)

522. mál, húsnæðissparnaðarreikningar

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstj. er vikið að nauðsyn átaks í húsnæðismálum. Segir þar m. a. að áhersla verði lögð á fjölbreytt sparnaðarform fyrir almenning er tengd séu kaupum eða byggingu íbúðar. Aukinn sparnaður er þjóðarnauðsyn en sérstök ástæða er til þess að hvetja þá sem vilja eignast íbúðarhúsnæði til forsjálni í fjármálum sínum og miða að því að eiga sparifé áður en ákvarðanir eru teknar um byggingu eða kaup á húsnæði.

Í byrjun þessa árs var sérstök nefnd skipuð til þess að fjalla um að taka mætti upp samningsbundin innlán við banka og sparisjóði til þess að fjármagna lán til íbúðarhúsnæðis. Jafnframt skyldi nefndin athuga með hvaða hætti löggjafinn gæti veitt skattívilnanir þeim aðilum er tækju upp slíkan samningsbundinn sparnað. Nefnd þessa skipuðu Halldór Blöndal alþm., formaður nefndarinnar, Árni Kolbeinsson, sem þá var skrifstofustjóri í fjmrn., Eiríkur Guðnason, forstöðumaður hagfræðideildar Seðlabankans, Haraldur Ólafsson alþm. og Þórður Ólafsson, forstöðumaður bankaeftirlits Seðlabanka Íslands, en Jón Ögmundur Þormóðsson, deildarstjóri í viðskrn., aðstoðaði nefndina í störfum hennar.

Nefndin aflaði ýmissa gagna um lög og reglur varðandi skipan húsnæðismála og fjármögnun þeirra í nágrannalöndum okkar. Sérstakur viðauki fylgir athugasemdum við þetta frv. og er þar að finna yfirlit um þá tilhögun sem við er höfð í Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð, Austurríki, Bandaríkjunum. Bretlandi, Frakklandi, Kanada og Þýskalandi.

Ég vil nota þetta tækifæri og þakka nefndinni og starfsmanni hennar fyrir vel unnin störf.

Meginefni þessa frv. er að verði það að lögum gefst færi á að njóta mikils skattafsláttar með sparnaði. Hér er ekki aðeins um að ræða sparnað vegna kaupa eða viðhalds á húsnæði heldur einnig almennan sparnað. Munur er þó þarna á sem greint verður frá.

Meginreglur frv. eru þær að reglubundinn sparnaður manna á húsnæðissparnaðarreikningum í bönkum og sparisjóðum skapar rétt til skattafsláttar sem nemur fjórðungi árlegs innleggs. Árlegur sparnaður skal vera minnst 12 þús. kr. en mest 120 þús. kr. og breytast upphæðir í samræmi við breytingar á byggingarvísitölu. Sparnaður skal vera reglulegur og varða vanskil ströngum viðurlögum, þ. e. missi skattafsláttar og hugsanlega missi annarra fríðinda skv. ákvörðun viðkomandi banka eða sparisjóðs. Sparifé má taka út eftir þriggja ára binditíma ef menn afla sér íbúðarhúsnæðis til eigin nota eða ráðast í meiri háttar endurbætur en ella er féð bundið í tíu ár, þó aðeins í fimm ár þegar um ellilífeyrisþega og 75% öryrkja er að ræða.

Auk hins mikilvæga skattafsláttar nýtur spariféð bestu ávöxtunarkjara í viðkomandi banka eða sparisjóði og kann að skapa rétt á láni við úttekt sparnaðarins eftir því sem viðkomandi stofnun getur boðið. Þeir sem náð hafa 16 ára aldri geta stofnað til húsnæðissparnaðarreikninga. Samhliða þessu frv. er lagt fram frv. um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt og geymir það frv. nánari ákvæði varðandi skattafslátt.

Herra forseti. Frv. það sem hér er flutt markar nokkur tímamót því að í því felst hvatning til að efla fornar dyggðir, hvatning til ungs fólks til að leggja eitthvað til hliðar sem það getur síðar lagt fram til þess að eignast þak yfir höfuðið og dregið þar með úr lántökum sem ævinlega þýða fjárstreymi í annarra vasa.

Herra forseti. Ég legg til að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.