10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6131 í B-deild Alþingistíðinda. (5600)

487. mál, þörungavinnsla við Breiðafjörð

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég skrifaði undir þetta nál. með fyrirvara. Fyrirvari minn byggist á því að ég óttast að hér sé veikburða byggðarlag að reisa sér hurðarás um öxl. Ég lít í anda hinn vaska flokk vestfirskra alþm. þegar þeir koma og krefjast þess að ríkið hlaupi undir bagga með þessari verksmiðju. Þrátt fyrir þessa framtíðarsýn segi ég já.