10.06.1985
Efri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6195 í B-deild Alþingistíðinda. (5650)
280. mál, rétt skil afurðasölufyrirtækja til bænda
Frsm. minni hl. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja mikið umr. um þetta mál, en árétta ein tvö atriði sem komu reyndar fram í máli mínu áðan.
Ég mun ekki fara í umræður við hv. 11. landsk. þm. um framleiðsluráðslögin almennt. Hins vegar vil ég taka það fram að ég er ekki þeirrar skoðunar að umboðssöluviðskipti hafi verið afnumin með framleiðsluráðslögunum 1947. Mikið má þá langlundargeð bænda vera ef menn hefðu ekki látið á það reyna á öllum þeim tíma.
Sannleikurinn er sá að þarna er um deilumál að ræða, en það breytir því ekki að hér hafa menn unnið að í fullu samkomulagi. Bændur hafa samið við sín afurðasölufyrirtæki um að taka af þeim framleiðsluvörurnar, selja þær í umboðssölu. Yfirleitt hafa afurðasölufyrirtækin skilað fullu verði nema á síðari árum. Ástæðan er, eins og við vitum, að fjármagnskostnaður hefur verið vanmetinn í verðlagsgrundvellinum.
Ég ætla ekki að fara út í umræður um milliliðakostnaðinn eða fara að verja það kerfi. Það má áreiðanlega ýmislegt bæta í þeim sökum. Hér hafa menn ákveðið vissa stefnumörkun, ætla að breyta um og taka upp annað fyrirkomulag. Ég hef lýst því yfir að ég styð það. En þessi till. tekur til fortíðarinnar og hún er órökrétt eins og hún er fram sett.