10.06.1985
Efri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6204 í B-deild Alþingistíðinda. (5667)

480. mál, greiðslujöfnun fasteignaveðlána

Frsm. meiri hl. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hl. fjh.- og viðskn. um frv. til l. um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga. Nál. er á þskj. 1198.

Nefndin hefur rætt málið og farið ítarlega yfir frv., en klofnaði um afgreiðslu þess. Meiri hl. n. leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það kom frá Nd., en þar hefur verið fjallað um það. Minni hl. skilar séráliti. Auk mín skrifa undir álit meiri hl. hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson, Valdimar Indriðason og Egill Jónsson.