10.06.1985
Efri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6206 í B-deild Alþingistíðinda. (5671)

86. mál, áfengislög

Frsm. meiri hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. meiri hl. hv. allshn. og meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt.

Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta mál. Menn hafa æðimikið rætt um bjór og ekki bjór að undanförnu. Ég hygg ekki að við bætum okkur neitt á langri umræðu hér í kvöld um það mál. Ég býst við því að öll rök bæði með og móti séu þegar komin fram og ég veit að hver einasti hv. alþm. hefur hugsað mikið um þetta mál. Sumum finnst það ekki stórt í sniðum. Sjálfur hef ég ekki tekið neinn þátt opinberlega í umræðum um málið. Ég hef gert það upp við mína eigin samvisku hvernig ég greiði hér atkv. og það veit ég að allir hv. þm. hafa gert.

En sem sagt: mín von er sú og sjálfsagt okkar allra að hvernig sem atkvgr. hér fer, og ég hef ekki hugmynd um hvernig hún muni fara, verði það til gæfu fyrir okkar þjóð. En ég vil leggja á það áherslu að ég er mjög eindregið á móti því að vísa þessu máli frá Alþingi, vísa því til þjóðaratkvgr. Ég tel að okkur beri skylda til að taka afstöðu hér og allir gera það auðvitað eftir bestu vitund og í von um að gott muni leiða af atkv. þeirra.

Þannig vona ég að atkvgr. fari, hvort sem málið verður samþykkt eða fellt verði ákvörðunin rétt.