11.06.1985
Neðri deild: 92. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6291 í B-deild Alþingistíðinda. (5723)
245. mál, lánsfjárlög 1985
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að gera frv. til lánsfjárlaga að umræðuefni í heild sinni. Afstaða okkar Alþb.-manna til frv. hefur komið skýrt og skilmerkilega fram hjá fulltrúa okkar í fjh.- og viðskn., hv. 3. þm. Reykv., og ég vísa til þeirrar afstöðu sem hann hefur greint frá í sambandi við afstöðu til frv. þessa í heild sinni.
Ég ætla aðeins að gera að umræðuefni brtt., sem ég flutti við frv. þegar við 1. umr. þess hér í Nd., sem er að finna á þskj. 757, og varðar heimild fyrir Framkvæmdasjóð Íslands til að taka lán að upphæð 100 millj. kr. til þess að endurlána Fiskveiðasjóði vegna mengunarvarna og orkusparnaðar í fiskimjölsverksmiðjum.
Till. sama eðlis var flutt af hv. þm. Helga Seljan í Ed. við meðferð frv. til lánsfjárlaga, en hlaut ekki nægilegan stuðning við meðferð málsins þar. En þar sem frv. þetta á eftir að fara aftur til Ed. yrði engin töf að því í viðvarandi meðferð málsins, sem vissulega hefur dregist stórkostlega úr hömlu að afgreitt yrði eins og hér hefur verið rakið, þó að afstaða verði tekin til þessarar till. og það jákvæð afstaða sem ég vissulega vænti að fást megi hér í hv. þingdeild við þessa brtt.
Það sem að baki þessum tillöguflutningi liggur er stórfellt heilbrigðismál og hollustumál sem tengist þeirri gífurlegu mengun sem fiskimjölsverksmiðjur víða um land valda í næsta umhverfi sínu og í heilum byggðarlögum og er að mínu mati stærsta mengunarvandamál á Íslandi nú og snertir fleiri en nokkur önnur mengun í landinu. Hér er ekki aðeins um að ræða loftmengun, sem þó kveður langmest að og er tilfinnanlegust, heldur einnig lagarmengun sem er sérstaklega tilfinnanleg í þröngum fjörðum og á það við um loftmengunina einnig.
Úrbætur í þessum efnum hafa dregist mjög úr hömlu þó að vissulega væri leitast við í tíð síðustu ríkisstj. að taka á þessu máli með hvetjandi aðgerðum og styrkveitingum til fiskimjölsverksmiðja til að ráða hér bót á. Svo hefur hins vegar farið að styrkir í þessu skyni hafa verið afnumdir og er ekki að finna á fjárlögum yfirstandandi árs. Nú má segja að afstaða þingsins til þessa máls efnislega liggi fyrir þar sem hv. atvmn. Sþ. hefur lagt fram álit við sérstaka þáltill. sem ég hef flutt ásamt hv. þm. Helga Seljan um mengunarvarnir í fiskimjölsverksmiðjum og þrátt fyrir nokkrar breytingar á upphaflegri till. er brtt. atvmn. varðandi þetta efni mjög jákvæð og er tekið eindregið undir nauðsynina á að brugðist sé við þessum mikla vanda sem mengunin frá fiskimjölsverksmiðjum er.
Til þess að ekki liggi aðeins fyrir till. af þessu tagi um frómar óskir höfum við fylgt þessu máli eftir með þeim tillöguflutningi sem hv. þm. Helgi Seljan stóð að í Ed. og ég hér í Nd. um fjármagn til handa Framkvæmdasjóði og Fiskveiðasjóði til þess að geta veitt lán til viðkomandi fyrirtækja. Það liggur einnig fyrir í þessu máli að verulegur sparnaður í formi orkusparnaðar getur orðið við þær úrbætur sem tengjast lausn á mengunarvanda frá þessum fyrirtækjum. Þannig fullyrði ég og tel að fyrir því liggi skýr rök að það fjármagn, sem í þessu skyni er veitt og lánað til fyrirtækjanna, endurheimtist á skömmum tíma með sparnaði í orku og raunar betra hráefni frá fyrirtækjunum.
Ég treysti því að hv. þd. ljái þessu máli stuðning þó að ekki hafi fengist undirtektir við það í hv. fjh.- og viðskn. þegar till. lá þar fyrir. En ég dró till. til baka til 3. umr. til þess að kostur gæfist á því fyrir hv. þd. að líta á þetta mál.
Ég vil inna hæstv. heilbr.- og trmrh., sem jafnframt gegnir nú störfum fjmrh., eftir viðhorfi hans til þessa máls. Virðulegur forseti. Er hæstv. ráðh. í kallfæri þannig að hann heyri mál mitt? (Forseti: Hæstv. viðskrh.?) Hæstv. heilbr.- og trmrh. sem gegnir störfum hæstv. fjmrh. um stundarsakir. — Ég vildi inna hæstv. ráðh. eftir efnislegu viðhorfi hans til þeirra tillagna sem fyrir liggja um úrbætur á mengunarvanda í fiskimjölsverksmiðjum og þá tillagna um lánsfé í þessu skyni til fyrirtækjanna til að geta brugðist skjótt við.
Ég væri þess mjög hvetjandi að einhverjir ráðherrar úr hæstv. ríkisstj. aðrir en hæstv. iðnrh., sem þekkir nú þetta vandamál m. a. af Austfjörðum, gerðu sér ferð einhvern góðviðrisdaginn í sumar austur á firði — (Gripið fram í: Eskifjörð?) austur á Eskifjörð, Seyðisfjörð, Norðfjörð — til þess að kynnast af eigin raun ástandinu eins og það er þegar loðnuvinnsla er komin í fullan gang við þær aðstæður sem oft ríkja þar í veðurfari. Það er tekinn af fólkinu á þessum stöðum sá unaður að njóta góðviðrisins, sem þar gefur á stundum, vegna mengunar sem er sýnilega meiri en Austfjarðaþokan þegar hún verður þéttust, svo ekki sé talað um fnykinn sem menguninni fylgir. Á sjávarmengunina hef ég líka minnt.
Ég vænti þess að hæstv. ráðh. taki fyrir sitt leyti jákvætt á þessu máli, einnig með stuðningi af væntanlegri samþykkt þáltill. frá hv. atvmn. um þetta mál. Ég veit að hæstv. ráðh. mun einnig þekkja þetta vandamál úr sínu kjördæmi, Vestfjörðum, þó að ég hyggi að vandinn sé þar ekki eins víða og kannske ekki jafntilfinnanlegur og gerist í fjörðum eystra og raunar víðar um land.