11.06.1985
Neðri deild: 92. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6294 í B-deild Alþingistíðinda. (5727)
528. mál, jarðræktarlög
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingu á jarðræktarlögum, nr. 79 29. maí 1972. Hv. Ed. hefur afgreitt þetta frv. og gerði á því smávægilega breytingu, en aðalatriði þess eru í þrennu lagi.
Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að á næstu tveimur árum, árunum 1985 og 1986, sem gildistími ákvæða þessa frv. ná yfir, verði dregið úr framlögum sem stuðlað geti að aukningu búvöruframleiðslu í hefðbundnum búgreinum, svo sem til framræslu og grænfóðurræktar. Það er sérstaklega gert ráð fyrir að framlag til grænfóðurræktar falli niður, nema til að bæta úr fóðurskorti vegna kals og annarra ræktunaráfalla af völdum harðinda, og enn fremur er sett hámark á vélgrafna skurði þessi tvö ár og þá miðað við það fyrst og fremst að unnt sé að hreinsa upp úr skurðum og halda þannig túnunum í góðri rækt sem er aðalatriði fyrir okkur miðað við þær aðstæður sem skapast hafa í landbúnaðinum, fremur en að auka þau.
Í öðru lagi er efldur stuðningur við heimaafla, svo sem endurræktun, bætta heyverkun og geymslu garðávaxta. en það skiptir vitanlega miklu máli að það nýtist sem best sem heima er aflað svo að draga megi úr aðkeyptum aðföngum eins og frekast er kostur.
Í þriðja lagi er efldur stuðningur við nýjar og vænlegar búgreinar, svo sem loðdýraræki. og enn fremur er gert ráð fyrir að veita stuðning við lýsingu í sérstökum uppeldishúsum fyrir garðyrkju þar sem slíkt lengir ræktunartímabil og eykur hagkvæmni í garðyrkju. Enn fremur til ræktunar skjólbelta sem getur orðið til þess að auka uppskeru í garðlöndum og túnum.
Jarðræktarlög hafa verið í endurskoðun að undanförnu og voru tekin fyrir á síðasta búnaðarþingi eftir að nefnd frá búnaðarþingi hafði fjallað um þau. Ekki tókst að ljúka afgreiðslu málsins á búnaðarþingi áður en því var slitið og það hefur m. a. leitt til þess að ekki var unnt á þessu þingi að leggja fram heildarendurskoðun á jarðræktarlögum. Þess vegna er farin þessi leið, en gert ráð fyrir að unnt verði að ljúka heildarendurskoðuninni sem allra fyrst.