12.06.1985
Efri deild: 97. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6373 í B-deild Alþingistíðinda. (5772)
Um þingsköp
Ragnar Arnalds:
Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli forseta á því að ekki verður það sagt um okkur dm. að við höfum verið sérlega langorðir um þetta mál eða haldið uppi neinu málþófi. Ég vil sérstaklega nefna t. d. okkur Alþb.-menn sem höfum sennilega ekki rætt þetta við 2. umr. málsins öllu lengur en einar 20 mínútur eða svo. Ég held að það sé auðvitað sjálfsögð krafa, þegar jafnmikið stórmál er á ferðinni og þetta, að menn fái að átta sig á því hvernig staðan er að lokinni 2. umr. og undirbúa brtt. fyrir 3. umr. og þar sem svo skammt er nú liðið frá 2. umr. þykir mér einsýnt að allir hljóti að styðja þá kröfu sem fram er komin frá hv. þm. Eiði Guðnasyni um að þessi umr. fari ekki fram fyrr en á morgun. Ég vil í þessu sambandi sérstaklega vekja athygli á þeirri ágætu meginreglu þingskapa að ef minni hl. andmælir því að umr. fari fram — ég hygg að það þurfi ekki að vera öllu stærri minni hl. en sem nemur 1/4 — ber að verða við þeirri kröfu.