12.06.1985
Efri deild: 97. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6374 í B-deild Alþingistíðinda. (5777)

86. mál, áfengislög

Björn Dagbjartsson:

Herra forseti. Mér finnst það megi varla minna vera en við þökkum þessum ágætu flm. till. fyrir að hafa losað okkur við þá ábyrgð að greiða atkv. um sjálft málið. Ég vona að við munum í framtíðinni halda áfram að njóta þess bjórlíkis sem alls staðar er á boðstólum og hæstv. dómsmrh. haldi áfram að fjölga þeim húsum sem mest. Ég hef orðið var við það undanfarna daga að það kunna margir að meta meðferð hæstv. deildar á þessu máli og vildi gjarnan koma því á framfæri.