13.06.1985
Sameinað þing: 95. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6446 í B-deild Alþingistíðinda. (5839)

222. mál, stofnun og rekstur smáfyrirtækja

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Það er mikill misskilningur að ég hafi verið að draga úr nauðsyn þess að þessi mál væru rædd, þvert á móti. Ég lét í ljós ánægju yfir því að okkur skuli gefast þetta tækifæri — líka í ljósi þess að það er ákveðið að kvöldfundir verði í deildum. Ég er einmitt mjög ánægður yfir því að okkur þm. skuli vera gefinn kostur á því að vinna vel hér í þinginu.