13.06.1985
Sameinað þing: 95. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6446 í B-deild Alþingistíðinda. (5840)

222. mál, stofnun og rekstur smáfyrirtækja

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það er enginn ágreiningur milli forseta og hv. 2. þm. Norðurl. e. um að við viljum að öllum sé gefinn kostur á því að vinna vel í þinginu og ég veit að allir hv. þm. eru sammála um það. En það sem hér var sagt áður af hálfu forseta var sagt að gefnu tilefni.