13.06.1985
Neðri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6462 í B-deild Alþingistíðinda. (5858)

522. mál, húsnæðissparnaðarreikningar

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1235 frá fjh.- og viðskn. Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt með breytingu sem till. er flutt um á sérstöku þskj. Undir þetta nál. skrifa allir nm. nema Halldór Blöndal sem var fjarstaddur.

Brtt. sem við flytjum varðar 7. gr. frv., en eins og hún er á þskj. 1182 er í henni þversögn. Við lagfærum sem sagt greinina þannig að hún stenst eins og til var ætlast við samningu frv.