13.06.1985
Neðri deild: 94. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6463 í B-deild Alþingistíðinda. (5860)
523. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. fjh.- og viðskn. á þskj. 1237. Þar segir að nefndin hafi fjallað um frv. og leggi til að það verði samþykkt með breytingu sem flutt er á sérstöku þskj. og hljóðar þannig með leyfi forseta:
„Við ákvæði til bráðabirgða bætist ný mgr. er verði 2. mgr. og orðist svo:
Meðan ákvæði laga um eignarskattsauka eru í gildi skal með hann fara á sama hátt og eignarskatt varðandi ráðstöfun ónýtts skattafsláttar, sbr. 1. og 3. málslið 2. efnismgr. 3. gr. þessara laga (68. gr. laga nr. 75/1981).“
Hér er um það að ræða að ákvæði skattalaga um eignarskatt nái jafnframt til eignarskattsaukans en það hefur þá þýðingu að hægt er að nýta skattafsláttinn með sama hætti og gerist um eignarskattsálagningu.