13.06.1985
Neðri deild: 96. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6479 í B-deild Alþingistíðinda. (5888)

Um þingsköp

Forseti (Ingvar Gíslason):

Út af þessari fsp. verður forseti að viðurkenna að ekki er fullráðið hvort fundur verður á laugardaginn. Hins vegar var það meining mín að reyna að ganga úr skugga um það í kvöld eða í fyrramálið hvort eðlilegt mun teljast að halda fund hér á laugardag sem reyndar er mjög óvenjulegt. Á þessari stundu treysti ég mér ekki til að gefa alveg ákveðið svar þar um, en ég skal verða við því að gefa það svar eins fljótt og auðið er.