13.06.1985
Neðri deild: 96. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6493 í B-deild Alþingistíðinda. (5896)
456. mál, Byggðastofnun
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Það er svo margt hægt að segja um það efni sem er hér á dagskrá að það er best að segja sem minnst. Þó langar mig að láta nokkur orð falla.
Það er eðlilegt að byggðamál séu hv. þm. hugstæð og þeir leggi sig alla fram til þess að skipa þeim sem best í framtíðinni. Og fyrst horfið var að því ráði að breyta nokkuð um hætti í þessum efnum, þ. e. frá Byggðasjóði yfir í Byggðastofnun, er eðlilegt að menn vilji hugleiða það efni nokkuð.
Hér við 3. umr. liggja fyrir tvær brtt. Önnur þeirra er frá 2. þm. Norðurl. e. og 3. þm. Reykv. Ég er sammála hæstv. iðnrh. í því að ef sú till. á þskj. 1253 yrði felld ofan á það sem gerðist við 2. umr. við nafnakall um till. næstum að segja sama efnis mundi ekki horfa vel fyrir höfuðstað Norðurlands. Um hina till. er það að segja að hún er frá hv. 5. þm. Vestf. um að í stað orðanna „á Akureyri“ komi: utan Reykjavíkur. Yrði sú till. samþykkt, og raunar hvort sem er, má ætla að til þess kunni að koma í framtíðinni að stjórn Byggðastofnunar hugleiði hvar hún ætli að velja sér samastað til frambúðar. Og þá koma vitaskuld margir staðir til greina. Þetta er í samræmi við það, sem hæstv. forsrh. sagði hér í dag, að ef stjórn Byggðastofnunar kæmi sér saman um heimili og varnarþing, án þess að það væri bundið í lögum, mundi verða á það fallist. Ég er sammála því að binda þessi efni ekki í lögum. En þó verð ég að segja að till. hv. 5. þm. Vestf. er mun aðgengilegri þó að hennar sé kannske ekki beinlínis þörf.
Af þessu tilefni og án þess að fara að halda uppi nokkru málþófi eða rökræða þetta mál efnislega ætla ég að til þess geti komið í framtíðinni, eins og ég sagði, að stjórn Byggðastofnunar hugleiði hvar hún eigi að velja sér framtíðarbústað. Og þá koma vitanlega margir staðir til greina því að margt er um fallega staði í okkar ágæta landi. Og ég vil leyfa mér að nefna einn þeirra því að það er gott að stjórnin fái hugmyndir til að velta fyrir sér. Ég vil leyfa mér að nefna Borgarnes. Það er fallegur staður í fögru héraði, blómlegu héraði, vaxandi byggð. Það er staðreynd að staðsetningin er frábær við Borgarfjörð, við Borgarfjarðarbrúna sem eitt sinn var sennilega umdeildasti hluti hringvegarins og er það máske enn þá. Þar er aðsetur landshlutasamtaka Vesturlands eða Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem ég ætla að hafi starfað af einna mestum þrótti miðað við samtök af því tagi. Ég ætla að leyfa mér að varpa þessari hugmynd fram. Ég ætla að koma henni hér á framfæri. Henni er hér með skotið til stjórnar Byggðastofnunar þegar og ef hún hugsar sér til hreyfings með að flytja aðalbækistöðvar sínar burt frá höfuðstað landsins í framtíðinni.