18.06.1985
Efri deild: 102. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6743 í B-deild Alþingistíðinda. (6029)

245. mál, lánsfjárlög 1985

Frsm. meiri hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1985 sem borist hefur þessari hv. deild að nýju frá hv. Nd. eftir nokkrar breytingar sem þar voru gerðar. Meiri hl. n. í þessari hv. deild leggur til að frv. verði samþykkt eins og það kemur frá Nd. Brtt. þekkja menn, þær hafa legið hér frammi í nokkurn tíma, svo að ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um málið.