18.06.1985
Neðri deild: 102. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6796 í B-deild Alþingistíðinda. (6079)

423. mál, viðskiptabankar

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Með vísan til þess að felldar hafa verið þær brtt. sem ég hef borið fram við þetta frv. og augljóst er að það eru fleiri á sauðskinnsskóm en Framsfl. í þessum efnum, þá sé ég mér ekki fært að samþykkja þetta mál þar sem það framlengir um ófyrirsjáanlega framtíð það sem ég þekki verst í íslenska bankakerfinu. Því segi ég nei.