19.06.1985
Neðri deild: 103. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6817 í B-deild Alþingistíðinda. (6121)

Um þingsköp

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég var nýbúinn að segja hæstv. forseta í fyrsta lagi að ég þyrfti að bregða mér frá til að ná í plögg. Í öðru lagi hafði ég spurt hann um það hvenær þetta mál gæti komið á dagskrá. Það eru u. þ. b. fimm mínútur síðan. Hæstv. forseti gat þá ekki veitt mér svör við því.