19.06.1985
Neðri deild: 104. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6891 í B-deild Alþingistíðinda. (6189)

499. mál, ríkisbókhald

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti fjh.- og viðskn. Nd. og nál. er á þskj. 1347. Nefndin hefur athugað þetta frv. og kallað til fundar við sig Höskuld Jónsson og Árna Kolbeinsson ráðuneytisstjóra. Mælir nefndin einróma með samþykkt frv. eins og það var afgreitt í Ed.

Guðrún Agnarsdóttir sat fundi nefndarinnar og er ásátt afgreiðslu málsins.