20.06.1985
Neðri deild: 106. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7016 í B-deild Alþingistíðinda. (6403)
536. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Flm. (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Það er mér sönn ánægja að verða forseta að liði og mæla hér fyrir frv. til l. um breyt. á lögum nr. 60 frá 1984 um Húsnæðisstofnun ríkisins. Flm. ásamt mér eru hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, Guðmundur Einarsson og Guðrún Agnarsdóttir.
Frv. þetta gerir ráð fyrir að við lög um Húsnæðisstofnun ríkisins bætist nýr kafli, sem verði IX. kafli, um húsnæðissamvinnufélög og búseturétt.
Þetta mál á sér hér í þinginu alllangan aðdraganda og allmerka þingsögu nú þegar. Það var til umræðu á hv. Alþingi á síðasta þingi þegar til meðferðar voru þau lög um Húsnæðisstofnun ríkisins sem ég vitnaði til áðan. Þá náðist ekki samkomulag um að fella inn í þau lög ákvæði um húsnæðissamvinnufélög og búseturétt, en hins vegar voru gefnar yfirlýsingar um það á hv. síðasta Alþingi að stefnt skyldi að lagasetningu um þetta mál á yfirstandandi þingi. Það hefur síðan, herra forseti, reynst örðug fæðing hæstv. ríkisstj. að koma sér saman um stefnumörkun í þessum málum.
Hæstv. félmrh. hafði lengi um það fögur fyrirheit að leggja þetta mál fyrir sem stjfrv. hér á þinginu, en það er nú ljóst orðið að af því verður ekki úr þessu. Stjórnarandstaðan hefur í allan vetur lagt á það mikla áherslu og fylgt því eftir að sett yrðu lög um þetta húsnæðisform og m. a. með fsp. hér á hv. Alþingi innt hæstv. ríkisstj. eftir því hvernig því miði.
Herra forseti. Það væri ánægjulegt, ef hæstv. félmrh. væri hér nærstaddur þegar þessi umr. fer fram. Ég fer fram á að forseti athugi hvort hægt sé að nálgast hæstv. félmrh. og gera honum viðvart um að þessi umr. fari hér nú fram. En ég held þó engu að síður áfram að mæla fyrir frv.
Þegar stjórnarandstaðan gerði með sér sérstakt samkomulag um það nú á vordögum að setja úrbætur í húsnæðismálum á oddinn hvað varðaði þingstörf það sem eftir lifði þessa þinghalds var inni í þeirri mynd að krefjast þess af hæstv. ríkisstj. að hún stæði við sín fyrirheit um að koma lagaformi á þessi húsnæðissamvinnufélög og ákvæði um búseturétt og var það eitt af fjölmörgum atriðum sem stjórnarandstaðan lagði áherslu á í því sambandi. Þá voru enn uppi af hálfu hæstv. ríkisstj. áform um að leggja málið fram. en stjórnarandstaðan upplýsti þá engu að síður að hún hyggðist taka frumvarpsdrög þau sem stjórnskipuð nefnd hafði gengið frá og leggja það fram í sínu nafni yrði ekki af því á næstunni að hæstv. ríkisstj. gerði svo.
Herra forseti. Ég hef þennan formála að máli mínu til þess að skýra hvernig á því stendur að hér hafa nú birst á hv. Alþingi ekki færri en tvö frv. samhljóða um húsnæðissamvinnufélög og búseturétt. Stjórnarandstaðan hafði sem sagt þegar fyrir nokkru síðan lýst því yfir að kæmi ekki fram frá hæstv. ríkisstj. frv. um þetta efni mundi hún sjá til þess að hv. Alþingi það er nú situr fengi slíkt frv. til umfjöllunar.
Þegar ljóst var orðið á síðustu dögum þinghaldsins að ekki mundi nást í hæstv. ríkisstj. samstaða um þetta mál og það lá fyrir að ágreiningur stjórnarflokkanna yrði til þess að hér liti ekki dagsins ljós stjfrv. um þetta efni leitaði stjórnarandstaðan eftir því við einstaka þm. stjórnarliðsins hvort þeir væru tilbúnir til þess að gerast meðflm. frv. til l. um þetta efni. Á það var látið reyna, en niðurstaðan varð sú sem nú liggur fyrir, herra forseti, að tveir hv. þm. Framsfl. kusu að leggja fram samhljóða frv. í eigin nafni fremur en að gerast meðflm. stjórnarandstöðuþm. um aðlögun að frv. þessu. Út af fyrir sig mætti hafa um þessa uppákomu, eins og það hefur verið orðað í einu dagblaðanna, nokkur orð. en ég tel þó ekki sérstaka ástæðu til þess. Það sem fyrir liggur hér, og ég vil að það komi hér fram, herra forseti, er það að þm. fimm stjórnmálaflokka af sex hér á hv. Alþingi eru reiðubúnir að leggja þessu máli lið. (Forseti: Hv. þm. bað um að athugað væri með nærveru hæstv. félmrh. Það hefur verið gert, en upplýst er að hann er ekki í húsinu.) Nú. (Forseti: Hv. þm. ræður því að sjálfsögðu hvort hann gerir hlé á ræðu sinni eða hvort hann heldur áfram.) Nei, herra forseti. Ég kýs engu að síður að klára að mæla fyrir málinu og ljúka a. m. k. fyrri ræðu minni við þessa umr. málsins og mun nú gera svo, með leyfi forseta.
Einstaka þm. kusu þó að hafa á fyrirvara um að þeir kynnu að vilja flytja eða fylgja einstökum brtt. við einstakar greinar frv. sem eðlilegt má telja í því tilviki að tekið er upp óbreytt það uppkast sem fyrir liggur frá stjórnskipaðri nefnd og því ekki nema eðlilegt að einstakir þm. áskilji sér rétt til að skoða einstök atriði nánar.
Það sem ég tel sem sagt, herra forseti, að liggi fyrir og ég vil enn undirstrika er það að fyrir þessu frv. og fyrir þessu húsnæðisformi er verulegur hljómgrunnur á hv. Alþingi, eins og sú staðreynd sýnir að flm. að þessum tveimur frv. koma frá fimm af sex stjórnmálaflokkum á hinu háa Alþingi. Ég vil einnig leyfa mér að halda því fram, herra forseti, með tilliti til þess hvernig hv. þm. eru saman settir, ef svo má að orði komast, að fyrir þessu húsnæðisformi og þeim frv. sem hér liggja fyrir sé meiri hl. eða a. m. k. verulegur stuðningur við þau í hv. félm. þessarar deildar sem væntanlega fengi þessi frv. til umfjöllunar. Ég vil að það liggi hér ljóst fyrir að svo komnu máli, herra forseti.
Það væri út af fyrir sig hægt að hafa alllangt mál um aðdragandann að þessu máli, hvernig það hefur borið fyrir úti í þjóðfélaginu og einnig á Alþingi, en með tilliti til aðstæðna hér, herra forseti, ætla ég ekki að hafa þau ýkja mörg að þessu sinni.
Ég vil þó í lokin leggja á það mikla áherslu að það er að mínu viti nauðsynlegt og algerlega óumflýjanlegt að hv. Alþingi taki á þessum málum. Það getur ekki gengið að heil félagsmálahreyfing úti í þjóðfélaginu sé vanrækt með þeim hætti sem tök Alþingis á þessu máli fram að þessu hafa borið vitni um. Ég er ekki að fullyrða að hv. þm. eigi að styðja afdráttarlaust þær kröfur sem þar eru uppi. Það verður að sjálfsögðu hver og einn hv. þm. að eiga undir sinni samvisku og gera upp við sig. En ég segi: Það er óviðunandi að hv. Alþingi taki ekki á þessu máli og afgreiði það þegar þúsundir fólks úti í þjóðfélaginu hafa stofnað með sér samtök, heila félagsmálahreyfingu, til að reyna að leysa úr einu þessu brýnasta dægurvandamáli samtímans á Íslandi, þar sem húsnæðismálin eru. Menn kunna að hafa misjafnar skoðanir á því hversu vænlegt þetta form, húsnæðissamvinnufélög og búseturéttarfyrirkomulag. sé í þessum efnum og hvort það sé pláss fyrir það í okkar húsnæðiskerfi eins og fjármögnun þeirra mála er nú komið, en ég segi þá enn: Um það verður að taka ákvörðun. Það er ekki hægt að halda þúsundum fólks úti í þjóðfélaginu í slíkri óvissu sem síðustu mánuðir hafa verið þessu fólki. Ég tel, herra forseti, að það væri mjög slæmt og mjög alvarlegt í raun ef þessi hreyfing væri kæfð í fæðingunni hér á Íslandi vegna áhugaleysis Alþingis og vegna þess að Alþingi kemur sér ekki saman um að taka á málinu, hvaða niðurstöðu sem það fengi, og ég bendi á hvílíkur aðili hliðstætt húsnæðiskerfi er í nálægum löndum og hvílíkt hlutverk það leikur þar í því að leysa húsnæðismálin í þeim löndum, t. d. á hinum Norðurlöndunum, í Hollandi og víðar, þar sem fullyrða má að þau séu mjög vel á vegi stödd eftir því sem gengur og gerist í kringum okkur.
Ég vil að lokum leggja á það sérstaka áherslu, herra forseti, að ég tel að það sé til verulegs vansa, og þá auðvitað fyrst og fremst fyrir hæstv. ríkisstj. og hæstv. félmrh. sem uppi hefur haft miklar heitstrengingar og fagrar orðræður í þessum efnum, að málum er nú svo komið að þessu þinghaldi er að ljúka án þess að hér birtist mótuð stjórnarstefna um þetta mál. Ég tel að þeir þm. stjórnarandstöðunnar sem vildu leggja þessu máli lið hafi ekki átt annars úrkosta en að bregðast við eins og þeir hafa nú gert, herra forseti. Út af fyrir sig fagna ég því að einstakir þm. innan stjórnarliðsins vilja einnig sýna lit í þessum efnum þó að það sé alveg ljóst að það sé fremur marklítið að hv. þm. úr öðrum stjórnarflokknum leggi fram frv. með þessum hætti og komi á engan hátt í staðinn fyrir það að hæstv. félmrh. hefði staðið við sín loforð í þessu máli. Það verður þó að segjast að það er rétt eftir öðru og rétt að vonum að niðurstaðan af þessu máli skuli nú liggja fyrir með þessum hætti. Það þarf auðvitað ekki að rekja hér, herra forseti, fyrir hv. þd. þá sögu sem hæstv. ríkisstj. á nú þegar, eftir rúmlega tveggja ára líftíma, í húsnæðismálunum. Þetta er einn anginn af því hvernig yfirlýsingar og loforð eru svikin og brotin, hvernig væntingar sem vaktar eru með almenningi eru barðar niður. Nú stöndum við hér, sennilega á næstsíðasta degi þinghaldsins, frammi fyrir uppgjöri þessa máls a. m. k. hvað þetta þinghald varðar. Ég vil þó taka fram, og ég tel ástæðu til að það komi hér einnig fram, ekki síst vegna þess að hæstv. félmrh. er ekki hér viðstaddur, að hæstv. ráðh. hefur gefið um það yfirlýsingar að einmitt þessi þáttur húsnæðismálanna, þ. e. ákvæði um húsnæðissamvinnufélög og búseturétt, verði lagður fyrir væntanlega mþn. til umfjöllunar. Ég bind vonir við það, herra forseti, að þar takist að marka þessu húsnæðisformi einhvern bás og ég lýsi því yfir af minni hálfu og míns flokks að ekki mun standa á okkur að taka þátt í umræðum um það. Væntanlega á það einnig við um aðra fulltrúa stjórnarandstöðu sem eru meðflm.
Herra forseti. Ég ætla þá ekki að hafa þessi orð fleiri með tilliti til aðstæðna á þinginu, en legg til að lokum að frv. verði eftir þessa umr. vísað til hv. félmn.