21.06.1985
Efri deild: 109. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7094 í B-deild Alþingistíðinda. (6520)
210. mál, selveiðar við Ísland
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Hæstv. forseti. Það er því miður alveg ljóst að það verður ekki með skaplegum hætti hægt að slíta fundi í kvöld nema það verði gert nú. Það er búið að taka út af dagskrá eitt mál sem hefur valdið miklum ágreiningi. Hér er um að ræða annað mál sem því miður veldur ágreiningi og það er ljóst að það verður haldið upp miklum umr., kannske ekki af mörgum, ég veit það ekki. Það er mikilsvert fyrir þá sem styðja þetta mál, og ég er einn þeirra, eða í meginatriðum styð ég það þó að ég hafi kannske ekki kynnt mér það nægjanlega, að öll sjútvn. hefur komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé gott mál og það sé styrkur fyrir sjútvrh. að hafa það í höndum, þegar hann gerir einhverjar ráðstafanir. Ég leyfi mér að leggja til að í þessari hv. þd. verði það a. m. k. látið átölulaust að okkar ágæti forseti fái heimild til að slíta nú fundi. Ég held að það væri sómi okkar allra.