21.06.1985
Efri deild: 109. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7097 í B-deild Alþingistíðinda. (6530)

Starfslok efri deildar

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Ég þakka hv. 5. landsk. þm. hlý orð og góðar óskir í minn garð og fjölskyldu minnar og hv. þdm. fyrir að taka undir þær óskir. Ég endurtek mínar bestu óskir til ykkar allra og fjölskyldna ykkar og segi þessum fundi slitið.