13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í B-deild Alþingistíðinda. (689)

114. mál, Greiningastöð ríkisins

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Varðandi þær fsp. eða umr. sem hér hafa farið fram vil ég endurtaka að í þessari þáltill., sem er um það bil að koma inn á borð þm., eru ákveðnar tillögur um hvernig með þetta mál sé eðlilegast að fara. Ég held að það sé heppilegast að geyma frekari umr. um málið þangað til það liggur hér fyrir. Eins og fyrir var lagt í 2. lið ákvæðis til bráðabirgða var þegar hafist handa um að kaupa húsnæði að Sæbraut 2.

Framkvæmd þess máls er enn í höndum menntmrh. Ég reikna með því að í meðförum hv. Alþingis næstu daga verði þessi mál færð til þess vegar sem þáltill. og þessi endurskoðunarnefnd gerðu ráð fyrir. Ég geymi mér þess vegna frekari svör við málið þangað til að ég geri grein fyrir till.