13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (695)

116. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Eins og kom fram í þessum orðum hv. 4. þm. Suðurl. er þetta auðvitað gífurlega mikið hagsmunamál fyrir fiskvinnsluna í landinu eins og hennar sakir standa nú. Undirbúningur þessara tillagna er á lokastigi og ég vænti þess að geta kynnt frv. og dreift því hér á hinu háa Alþingi alla vega í þessum mánuði. Að öðru leyti verða nákvæmari svör við fsp. hv. 5. þm. Austurl. að bíða.