13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í B-deild Alþingistíðinda. (707)

142. mál, afnám tekjuskatts af almennum launatekjum

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég fagna mjög þessari yfirlýsingu hæstv. ráðh. og hef ástæðu til að ætla að hans meining sé þessi. En þá er það þvert á það sem fram kemur í fjárlagafrv. sem nú liggur fyrir Alþingi. Þar er gert ráð fyrir að taka þessar 600 millj. með öðrum hætti í sköttum. En ég fagna sérstaklega þessari yfirlýsingu og ég vænti þess að hæstv. fjmrh. takist að ná yfirhöndinni í glímunni við aðra þá sem hér eiga hlut að máli þannig að hér verði í raun og veru um skattalækkun að ræða en ekki tilfærslu.