13.11.1984
Sameinað þing: 20. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 991 í B-deild Alþingistíðinda. (711)

64. mál, málefni aldraðra

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Svarið við þeirri spurningu sem hv. 2. landsk. þm. Jóhanna Sigurðardóttir lagði fyrir mig er stutt. Já, það hefur verið rætt í ríkisstj. Hvenær það kemur til framkvæmda? Ég verð að viðurkenna að ég man ekki hver niðurstaðan var og sé enga ástæðu til þess að gefa aðrar upplýsingar en þær sem ég veit að eru réttar. Ég hefði gjarnan viljað láta heilbr.- og trmrh. svara þessari spurningu, en hann er nú því miður ekki viðstaddur. En sem sagt, svarið er já, Þetta hefur verið rætt.