19.11.1984
Efri deild: 15. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1080 í B-deild Alþingistíðinda. (767)
155. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Stefán Benediktsson:
Herra forseti. Ég segi eins og hv. 2. þm. Austurl.: Það er ánægjulegt að geta komið hér í stól og þakkað vinnu ríkisstj., í þessu tilviki fjmrh. Ég tel að hér sé viturlega að málum staðið. Ég geri mér grein fyrir því að þessa koma ýmsir aðilar til með að njóta sem mönnum finnst kannske á vissum augnablikum að ættu það ekki algerlega skilið þar sem aðstæður manna sem á eftirlaunaaldur komast, eru auðvitað misjafnar. En vegna þess að 1. gr. frv. höfðar aðallega til A-liðar 7. gr. laga um tekju- og eignarskatt langar mig í þessu sambandi að forvitnast um atriði sem ekki er beinlínis þessu nátengt. Hér á landi eru verðlaun. heiðurslaun, happdrættisvinningar og annað slíkt framtalsskyld og skattskyld. en löggjafinn ákveður undantekningar í ákveðnum tilvikum, aðallega til happdrætta.
Ég held að ég fari rétt með það að hingað til hafi þrír Íslendingar fengið svokölluð „bjartsýnisverðlaun“ dansks fyrirtækis sem heitir Brøste. Öllum þeim aðilum sem þessi verðlaun hafa fengið ber saman um það að þau gufuðu upp við afhendingu vegna þess að þau hyrfu að stórum hluta í ríkissjóð sem skattskyldar tekjur. Mig langaði til að spyrjast fyrir um það hvort ekki væri fyrirhugað að gera á þessu einhverja breytingu því að manni finnst það óneitanlega býsna hart að þurfa að horfa upp á það að bjartsýni skuli vera skattskyld á Íslandi.