20.11.1984
Sameinað þing: 23. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1121 í B-deild Alþingistíðinda. (792)

Umræður utan dagskrár

Svavar Gestsson:

Ég tel ástæðu til þess, herra forseti, að þakka fyrir þær umr. sem hér hafa farið fram þó að þær hafi farið nokkuð úr böndunum, miðað við það sem gert hafði verið ráð fyrir, vegna þess m.a. að einum þátttakenda í umr. var mikið niðri fyrir og hann vildi koma á framfæri löngum og ítarlegum texta. Ég tel að hæstv. forsrh. hafi því miður ekki svarað þeim spurningum, sem ég lagði fyrir hann, þannig að viðunandi sé, en úr því að tíminn er forhlaupinn, svo sem raun ber vitni um, verður að halda þessari umr. áfram síðar.